top of page
Langleidin_4.jpg

Leggur x: Kaldárssel - Bláfjöll

Fjórði hluti langleiðarinnar liggur frá Kaldársseli um Selvogsgötuna upp í Grindarskörð, þaðan eftir gönguleið upp að skíðasvæðinu í Bláfjöllum og endar við skíðaskála Ullr.

Leiðarlýsing

Vegalengd

16.8 km

Hækkun/lækkun

514/42 m

Undirlag

Hraun, möl, grjót, mosi, mold, þúfur

Leiðin

Stikað að mestu leiti eftir gönguleið sem kallast Reykjavegurinn en einnig hluti Selvogsgötu

Trakk

Garmin (raunhlaup)

Strava route

Fatmap 3&4

Nánari lýsing

Leggur 4 er einn stysti leggur Langleiðarinnar en nokkuð á fótinn. Hlaupið er áleiðis frá Kaldárseli, út fyrir Valahnúka og eftir gönguleiðinni Selvogsgata. Þeirri leið er fylgt í gegnum skemmtilega leið um hraun og kletta, yfir Bláfjallaveg og framhjá hellum og hólum upp í Grindarskörð. Þar er farið af Selvogsgötunni á stikaða gönguleið í áttina að Bláfjöllum. Þar þarf að fylgja gönguleiðinni gegnum Dauðadal yfir hraunið og ýmiskonar misjafn undirlag. Þessi gönguleið er minna farin er aðrar gönguleiðir og því minna til gengin og torfarin að hluta. Komið er inn á Bláfjallaveg ofarlega í námunda við skíðaskála Ármanns. Hér er kosið að halda áfram eftir malbikinu og yfir síðasta malarbílastæðið uns leggurinn endar á skíðasvæðinu við Bláfjöll við skála Ullr, gönguskíðafélags.

Til athugunar

Þessi leið er talsvert á fótinn og stígar farnir að versna á síðari hluta leiðarinnar. Einnig er mikilvægt að skoða vel veðurspá fyrir Bláfjallasvæðið sérstaklega. Það getur verið allt annað veður upp við Bláfjöll heldur en niður við Kaldársel.

Myndasöfn

Google myndalbúm frá 2020

Ferðasögur

Ferðasaga Óskars 20.júní 2020

20200620_140804.jpg
bottom of page